top of page

Skilmálar

 

Vefverslun Raritet er rekin af:

Raritet ehf.
Kt. 600613-0810
Suðurlandsbraut 48
Sími: 783 3020
vefverslun@raritet.is

VSK númer 114173

​

Með því að nota vefverslun Raritet ehf. samþykkir þú þessa skilmála.

 
Pantanir

Tekið er við pöntunum í gegnum netverslunina allan sólarhringinn. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.  Athugið að greiðsla er ekki samþykkt fyrr en staðfest er að varan er til á lager hjá okkur. Þegar búið er að samþykkja greiðslu og senda pöntunina af stað færðu staðfestingarpóst þess efnis. Raritet ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

 
Verð

Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Verð geta breyst án fyrirvara. Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Raritet ehf sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.

 

Greiðslur

Raritet ehf. býður upp á greiðslu með korti í gegnum  örugga greiðslusíðu Korta. Pöntun er samþykkt um leið og millifærslan hefur gengið í gegn. Ef ekki er greitt innan 3ja daga telst pöntun ógild.

 

Afhending vöru

Afhendingartími er að jafnaði 1-3 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Varan er keyrð heim á höfuðborgarsvæðinu en send á næsta pósthús á landsbyggðinni. Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram.

 

Sendingakostnaður er 1.390 kr. fyrir sendingar um allt land. Sendingakostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 4.900 kr. eða meira.  

 

Pantanir á landsbyggðina eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Á vefsíðu Íslandspósts eru þessar upplýsingar aðgengilegar. Raritet ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Raritet ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu, óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Vinsamlegast sendið tölvupóst á info@raritet.is ef þið hyggist skila eða skipta vöru. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru og er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur, nema vara sé gölluð. 

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í formi sömu eða sambærilegrar vöru í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Upphæð bóta vegna galla verður aldrei hærri en verðmæti upprunalegu vörunnar. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003

 
Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Raritet ehf. mun ekki afhenda þriðja aðila persónuupplýsingar sem verða til í tengslum við viðskiptin eða varðveita þær lengur en ástæða er til.
Privacy policy: All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
Governing law / Jurisdiction
These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law

 

Vinsamlegast hafið samband á info@raritet.is eða í síma 783 3020 ef einhverjar frekari spurningar vakna. 

bottom of page